Ég fer bráðum að fara á sundnámskeið. Reyndar byrja ég ekki fyrr en
7. janúar en við erum búin að bóka mig í ungbarnasund hjá
Sundskólanum Svamla í Grafarvogslaug. Og hlakkar mér ekkert smá til að
byrja. Svo virðist sem ég verði með einhverjum að krílunum út
mömmuhópnum okkur mömmu því að t.d. þá er hann Davíð Goði líka að byrja
sama dag og ég. Við virðumst ætla að vera samstíga hvað varðar
dagsetningar, því við vorum einmitt fæddir sama dag.