20.10.2005 15:48
Hjúkrunarkonan kom og skoðaði mig í dag og var ég auðvitað eins frábær
og hægt var að búast við. Er kominn rétt uppfyrir 4900 grömm svo að ég
er að þyngst vel og ætli ég sé ekki bara að verða 57 eða 58 cm langur.
Hljómar vel. Ég var svo flottur að við ætlum ekki að hitta Sigurósk
fyrr en þegar ég fer í 6 vikna skoðunina mína 2. nóvember. En hún vildi
að mamma kæmi til sín í fyrramálið til að mæla járnmagnið hjá henni og
svo til að taka blóðþrýstinginn því að hún er búin að vera svo máttlaus
síðan á þriðjudagskvöldið og grunar Sigurósk að mömmu vanti járn.