Ég fór í fyrsta sundtímann minn í gær í Grafarvogslaug, en sundskólinn minn heitir Svamli. Skemmti ég mér mjög vel og var voðalega duglegur. Fór ekki einu sinni að gráta í lauginni, kvartaði reyndar kröftulega einu sinni en stóð mig annars eins og hetja. Davíð Goði vinur minn er með mér í sundi og stóð hann sig líka mjög vel. Og vorum við ekkert smá flottir á sundskílunum.
Pabbi var því miður lasinn svo að hann kemur bara með næst. Mamma og pabbi ætla líka að taka þá myndir af mér í sundinu svo að þá fáið þið að sjá hvað ég er flottur sundkappi.