Sebastían Jóhann Einarsson

Velkomin á heimasíðuna mína
Welcome to my website

04.08.2006 10:25

Leikið í rigningunni og ferð á slysó

Áðan fékk ég að leika mér í pollunum í götunni og fannst það ekkert smá gaman. Mamma klæddi mig í pollagallann minn sem er nú aðeins og stór en ég stækka bara uppí hann! Svo gengum við líka aðeins um götuna og fékk ég að skoða nágrannana sem við hittum á labbinu. Ég sé sko að ég þarf að vera duglegri að fara út að leika mér.

En í gær fór ég upp á slysó á hraðferð. En ég hafði komist yfir poka sem koma oft í töskum ... í þessu tilfelli í nýjá reiðhjólahjálminum mínum ... og eiga að halda raka í burtu. Pokinn hafði verið settur á borðið ásamt leiðbeiningunum um hvernig hjálmurinn eigi að sitja á hausnum mínum og þar sem ég náði ekki upp á borðið almennilega átti þetta jú að vera öruggur staður. Nema hvað að ég tók mig bara til og hvolfdi borðinu! Ekkert að fara mjúkum höndum þar, eins gott að gera hluti bara almennilega ef maður gerir þá á annað borð. Þannig datt pokinn á gólfið og tókst mér að naga hann aðeins. Kom þar pabbi að mér og var fljótur að taka pokann út úr mér og vaða þar inn eftir einhverjum kúlum sem gætu verið þar - en að magninum enn í pokanum var ekki um margar kúlur að ræða sem ég gæti hafa borðar - og svo var ferðinni heitið upp á slysó. Þar var okkur vísað inn á barnabiðstofuna og þurftum sem betur fer ekki að bíða lengi eftir lækninum. Þar fengum við fær góðu fréttir að silicon kúlurnar í þessum pokum - alla vegna í okkar tilfelli - eru ekki hætturlegar og fékk ég því að fara heim að borða. Mamma tilkynnti mér það nú að hún vonaði að núna væri ég búinn með minn sysó kvóta, alla venga í náinni framtíð!

Flettingar í dag: 788
Gestir í dag: 250
Flettingar í gær: 283
Gestir í gær: 76
Samtals flettingar: 29543
Samtals gestir: 9995
Tölur uppfærðar: 15.1.2025 19:58:13

Eldra efni

Tenglar