Sebastían Jóhann Einarsson

Velkomin á heimasíðuna mína
Welcome to my website

14.10.2006 21:15

Myndbönd + orðaforði + afmæli

Mamma var að setja inn fullt af myndböndum fyrir mig svo endilega stoppið við og kíkið á þau. Og mun svo eftir gestabókinni minni

Annars sitjum við hérna og bíðum eftir fréttum frá Danmörku en Stine frænka er komin fram yfir settan dag og er ég alveg voðalega spenntur að fá að vita hvort ég fái litla frænku eða lítinn frænda. Við höldum öll að þetta sé lítill frændi, enda benda genin til þess en það verður alveg ógurlega gaman að eiga litla frænku. Vonandi náum við að hitta þau en Stine, Martin og litla krílið verða í Færeyjum í um 2 mánuði í Jan-mars og langar okkur alveg gírulega að fara að heimsækja  þau. Bara að krossleggja fingur og vona að allt gangi upp en það sem er svo heppilegt er að mamma er í vetrarfríi akkúrat í febrúar svo að þetta liggur svo vel við. Enda ekki seinna vænna þar sem ég get orðið sagt eitt orð á færeysku "dumme" en það þýðir víst heimskur. Þetta pikkaði ég upp einhverstaðar og tönglast á þessu daginn út og inn.

Fyrir nokkrum dögum leit ég á mömmu, sem var að biðja mig að fara varlega með hlutinn sem var í gluggakistunni, voðalega alvarlegur og skagði bara "skamm" við hana. Ekki kannst nú neitt við að hafa notað skamm við mig svo uppi eru miklar vangaveltur um hvar ég hafi fengið þetta orð. Einnig er do-do í þeim leyndarupprunapakka. En núna segji ég; mamma, afa, amma, dad / da-da en er hættur að segja pabbi, skamm, do-do, datt, taa sem er takk, dudda, namm namm, dumme, og alveg heilan helling af óskiljanlegum hlutum.

Svo er ég að fá annað lítil frændsystkini í desember, en hún Sóla frænka er sett þá svo að það verður jú aldeilis gaman að eiga eitt frændsystkini hérna á Íslandi lika sem er á mínum aldri.

Ég vildi líka óska Nele vinkonu hennar mömmu, en hún býr í Belgíu, hjartanlega til hamingu með Giel sem kom í heiminn í gær, föstudaginn 13 klukkan 9. Hlökkum til að sjá myndir. Congratulations Nele and Dirk.

Síðast en ekki síst vill ég þakka öllum fyrir sem komu í afmælið mitt og segja kærar þakkir fyrir mig. Það er sko búið að vera voðalega mikið fjör að skoða allt dótið sem ég fékk. Enda ekki á hverjum degi sem það verður gífurleg aukning í dótakassanum - sem er nú reyndar orðin dótahilla og er ég miklu sáttari við það enda er núna hægt að láta hluti detta meira en áður!!!

Flettingar í dag: 638
Gestir í dag: 208
Flettingar í gær: 283
Gestir í gær: 76
Samtals flettingar: 29393
Samtals gestir: 9953
Tölur uppfærðar: 15.1.2025 19:37:11

Eldra efni

Tenglar