Sebastían Jóhann Einarsson

Velkomin á heimasíðuna mína
Welcome to my website

20.10.2006 14:19

Lítil frænka í Danmörku

Ég var að eignast litla frænku í morgun í Danmörku og erum við alveg gífurlega spennt að sjá mynd af henni. En hún er alveg óbyggilega alveg ógurlega sæt. Samkvæmt afa var hún 3,3 kg og 52 cm svo að voðalega myndarleg dama þar.

Maður er bara orðinn voðalega montinn, bara 2 frændsystkini í einni viku!

17.10.2006 20:50

Viðbót í fjölskylduna

Pabbi var að tala við afa í Danmörku og fengum við þær fréttir að Stine frænka verður sett af stað á föstudaginn ef ekkert verður farið að gerast á undan. Þannig að ég verð kannski búinn að fá annan lítinn frænda þá, en við höldum að það sé strákur hjá þeim. Bara fullt af frændsystkinum hjá mér um þessar mundir.

17.10.2006 17:01

Elvar Máni

Ég eignaðist lítinn frænda um hádegisbilið í dag og var hann nefndur Elvar Máni. Núna bíðum við bara spennt eftir að fá að vita meira og auðvitað að fá að sjá myndir.

Velkominn í heimill litli frændi og hjartanlega til hamingju með prinsinn Stebbi og Jana.

14.10.2006 21:15

Myndbönd + orðaforði + afmæli

Mamma var að setja inn fullt af myndböndum fyrir mig svo endilega stoppið við og kíkið á þau. Og mun svo eftir gestabókinni minni

Annars sitjum við hérna og bíðum eftir fréttum frá Danmörku en Stine frænka er komin fram yfir settan dag og er ég alveg voðalega spenntur að fá að vita hvort ég fái litla frænku eða lítinn frænda. Við höldum öll að þetta sé lítill frændi, enda benda genin til þess en það verður alveg ógurlega gaman að eiga litla frænku. Vonandi náum við að hitta þau en Stine, Martin og litla krílið verða í Færeyjum í um 2 mánuði í Jan-mars og langar okkur alveg gírulega að fara að heimsækja  þau. Bara að krossleggja fingur og vona að allt gangi upp en það sem er svo heppilegt er að mamma er í vetrarfríi akkúrat í febrúar svo að þetta liggur svo vel við. Enda ekki seinna vænna þar sem ég get orðið sagt eitt orð á færeysku "dumme" en það þýðir víst heimskur. Þetta pikkaði ég upp einhverstaðar og tönglast á þessu daginn út og inn.

Fyrir nokkrum dögum leit ég á mömmu, sem var að biðja mig að fara varlega með hlutinn sem var í gluggakistunni, voðalega alvarlegur og skagði bara "skamm" við hana. Ekki kannst nú neitt við að hafa notað skamm við mig svo uppi eru miklar vangaveltur um hvar ég hafi fengið þetta orð. Einnig er do-do í þeim leyndarupprunapakka. En núna segji ég; mamma, afa, amma, dad / da-da en er hættur að segja pabbi, skamm, do-do, datt, taa sem er takk, dudda, namm namm, dumme, og alveg heilan helling af óskiljanlegum hlutum.

Svo er ég að fá annað lítil frændsystkini í desember, en hún Sóla frænka er sett þá svo að það verður jú aldeilis gaman að eiga eitt frændsystkini hérna á Íslandi lika sem er á mínum aldri.

Ég vildi líka óska Nele vinkonu hennar mömmu, en hún býr í Belgíu, hjartanlega til hamingu með Giel sem kom í heiminn í gær, föstudaginn 13 klukkan 9. Hlökkum til að sjá myndir. Congratulations Nele and Dirk.

Síðast en ekki síst vill ég þakka öllum fyrir sem komu í afmælið mitt og segja kærar þakkir fyrir mig. Það er sko búið að vera voðalega mikið fjör að skoða allt dótið sem ég fékk. Enda ekki á hverjum degi sem það verður gífurleg aukning í dótakassanum - sem er nú reyndar orðin dótahilla og er ég miklu sáttari við það enda er núna hægt að láta hluti detta meira en áður!!!

12.10.2006 09:45

Hás

Ég virðist hafa krækt mér í þetta nefrennsli og hæsi sem er að ganga allsstaðar ... eða svo er mér sagt alla vegna. Ég er svo hás að ég get ekki einu sinni skælt og kvartað almennilega!! Og þá er nú mikið sagt. En ég fór nú af stað í leikskólann í morgun því það er ekkert annað hrjá mig. Ég átti að vísu nokkuð erfitt með að sofna í gær og að slappa af í nótt svo að ég fékk að kúrast með mömmu og sofa uppí í nótt, það að vísu þýddi að mamma greyið svaf í kremju á milli mín og pabba og svaf því ekki mikið sjálf.

Svo fara að koma myndir inn úr afmælisveislunni minni bráðlega.

05.10.2006 09:18

Ný slóð

Halló allir, ég er kominn með nýja slóð inn á síðuna mína, en í stað www.123.is/hilnar er ég kominn með www.123.is/sebastian. Mér langaði miklu frekar að fá að hafa mitt nafn í slóðinni heldur en bara það sem mamma og pabbi nota. Þau ætla víst að halda þeirri síðu opinnri sem stendur en ég veit svo sem ekki hvað þau ætla að setja inn á hana.

Vonandi í kvöld kemur svo ferðasagan mín inn, það er bara búið að vera svo mikið að gera hjá okkur síðan að við komum heim, og þá koma væntanlega líka myndir til að skoða en þið fáið tilkynningu þegar það hefur verið gert.

18.09.2006 01:16

Sólskynskveðja

Þá er ég nú kominn á Flórída og gengur allt svona vel hjá okkur. Ég fékk að busla í sjónum í dag og var svona ægirlega gaman hjá mér, annars fáið þið nú ferðasöuna mína seinna svo að núna fáið þið bara eitt  

14.09.2006 11:54

Tónlistarskólinn

Ég gleymdi að segja frá því í morgun að það er búin að skrá mig í Suzuki tónlistarskólann og byrja ég miðvikudaginn 4. október. Mig hlakkar alveg ógurlega mikið til, en þangað mun ég fara einu sinni í viku í allan vetur í um klukkutíma í senn. Vonandi á þetta eftir að vera alveg gífurlega gaman hjá mér.

14.09.2006 09:16

10 skref, lasleiki, kríli og frí ...

Núna er ég búinn að vera í fríi frá leikskólanum síðan á mánudaginn, en mamma og pabbi vildu ekki að ég væri á leikskólanum síðustu dagana fyrir flugið ef ég skyldi verða lasinn. Ég er reyndar búinn að vera með einhverja flumbru en við höldum að hún sé frekar útaf jöxlunum sem ég virðist vera að fá. Er alveg stokkbólginn í bæði eftir og neðri gómi vinstra meginn. Vonandi tekur þetta ekki langann tíma í viðbót, en ég reyndar svaf í gegnum nóttina í nótt í fyrsta skipti núna í 4 daga svo að þetta er vonandi allt að klárast.

En svo er ég nú orðinn það vær að ég tók barasta heil 10 skref á þriðjudaginn inni í eldhúsi voðalega góður með mig. Var reyndar með kústinn hennar ömmu en ég vill ekki ganga nema að ég haldi á einhverju.

Svo eignaðist ég vinkonu á laugardaginn en hún dama Stígsdóttir fæddist þá og fara mamma og pabbi að kíkja á hana í kvöld, en ég fæ ekki að fara með. Verð bara að bíða og sjá hana þegar hún kemur í afmælið mitt.

Einnig vilid ég segja til hamingju með afmæli við Mána en hann verður 1árs 18. september og líka við Davíð Goða sem verður 1 árs sama dag og ég, eða 23. september.

Svo er ég að leggja land undir fót á morgun og er að fara til Ameríku að sleikja sólina

06.09.2006 22:47

Nýjar myndir

Fullt af nýjum myndum.

Endilega kíkið og munið eftir gestabókinni!

06.09.2006 21:15

Spenna komin í fólkið

Núna er ég voðalega spenntur því að hún mamma kláraði MSc gráðuna sína í dag og vonandi hefur lokaprófið hennar bara gengið vel, en það kemur ekki alveg í ljós strax. En við komumst að því í dag að ritgerðin hennar kom mjög út og fékk hún A.

Ég var heima með mömmu í dag því að ég var með 38,5°C í morgun en var orðinn hitalaus þegar ég fór að sofa í kvöld og ef ég verð hitalaus á morgun fæ ég að fara á leikskólann en mér finnst orðið voðalega gaman á leikskólanum. Fer beint að leika mér og kvarta barasta ekki neitt, og svo borða ég svo voðalega vel á leikskólanum að þær spurðu mömmu hvort að ég væri stoppaður heima fyrir því þeim finnst sennilega að ég vorði voðalega mikið .....

29.08.2006 12:00

Sofið út!

Svefninn minn er kominn í svo mikið lag að ég leggst út af án þess að kvarta eitt né neitt og hef ég sofið undanfarna daga þangað til rétt eftir 7! Vá mamma og pabbi voru ekkert smá hissa og það sérstaklega TVO daga í röð. Vonandi er þetta ferli sem er komið til að vera.

En mér finnst kvöldin alltaf svo þægileg, þá fer ég í náttföt um átta leitið og svo ýmist strax á eftir eða um hálf níu sest ég með annað hvort mömmu eða pabba og slappa af kúrandi með Lúlla og sængina mína, svo fæ ég vellinginn og drekk hann frammi, ásamt því að tannbursta mig og kúrast svo aðeins. Svo þegar ég er orðinn nokkuð þreyttur er ég borinn inn og lagður í rúmið mitt. Og þar sofna ég undantekningarlaust án þess að kvarta, þarf ekki einu sinni snudduna alltaf til að sofna. Mamma og pabbi eru ekkert smá stolt af mér, enda er ég orðinn svo duglegur.

25.08.2006 10:31

2 skref

Undan farna daga er ég búinn að vera að æfa mig í að standa sjálfur, og dreif ég mig bara í gær í að fara og taka 2 skref alveg sjálfur. Núna er bara spurning hvort að ég stingi bara af fyrir 1 árs afmælið mitt. Var ég voðalega montinn í gær og auðvitað mamma og pabbi líka

Svo þegar ég var að fara á leikskólann með pabba í morgun, tók ég 1 skref í áttina til hans þegar mamma setti mig niður. Er orðinn svo voðalega duglegur!

24.08.2006 07:29

11 mánaða töffari

Nú styttist óðum í 1 árs afmælið mitt en þá verð ég stattur á Flórída í fríi að njóta lífssins. Við erum orðin voðalega spennt hérna heima með að fara í ferðina okkar. Annars er ekkert mikið að frétta á þessum bæ nema hvað að hún mamma er búin að skila inn ritgerðinni sinni og á núna bara eina minni ritgerð og lokapróf eftir og þá er hún búin í þessu námi. Ég er farinn að klappa alveg á fullu og finnst það alveg ógurlega skemmtilegt. Er enn smá braserí á leikskólanum þar sem ég er ekki alveg sáttur en það skánar með hverjum deginum - ætli ég verði ekki orðinn góður þegar ég fer aftur í frí!

Flettingar í dag: 323
Gestir í dag: 73
Flettingar í gær: 283
Gestir í gær: 76
Samtals flettingar: 29078
Samtals gestir: 9818
Tölur uppfærðar: 15.1.2025 16:55:03

Eldra efni

Tenglar