Sebastían Jóhann Einarsson Velkomin á heimasíðuna mína
|
|
18.08.2006 08:36Ælupest og stubbarnirHæ hó, það er vonandi að þið hafði ekki fengið þessa skæðu ælupest sem við mamma, pabbi og amma fengum. Enda er ég búinn að vera heima síðan á miðvikudag frá leikskólanum og ég sem var að koma til baka úr sumarfríi á síðastliðinn mánudag! En ég er búinn að vera heima með honum pabba og höfum svið skemmt okkur vel en hún mamma er nefnilega farin að vinna - kom reyndar heim lasin úr vinnunni í gærmorgun og ætlar að vera heima með okkur pabba í dag. En góð fréttirnari eru alla vegna þær að mér líður miklu betur og borðaði stórann morgunmat og hefur hann ekki látið sjá sig sem stendur. Mamma kom með Stubbana heim fyrir mig á þriðjudaginn, en mér finnst þeir alveg ógurlega skemtilegir, og var það sko alveg í tíma því að ég hef fengið að horfa smá á þá á meðan ég hef verið lasinn. Fín afþreying þegar maður er lasinn. Og finnst mér litla barnið í sólinni skemmtilegast og skríki nánast alltaf þegar það kemur. Skrifað af Sebastían 12.08.2006 09:41Til hamingju með daginn Heiða og KarlElsku Heiða frænka og Karl, innilegar hamingju óskir á brúðkaupsdaginn. Vonandi verður dagurinn alveg ógleymanlegur! Ég sendi ykkur bara kveðju með mömmu og pabba og voandi sé ég ykkur nú áður en þið farið aftur út. Skrifað af Sebastían 09.08.2006 11:32AukaviktunÉg var að koma úr aukaviktuninni minni og er ég orðinn 10225 grömm og 74 sentimetrar. Voðalega stór og flottur. Leist hjúkrunarfræðingnum bara vel á mig og hún sagði líka mömmu og pabba að hafa engar áhyggjur yfir því hvað ég borða mikið - en ég er alveg gífurlegt matargat Svo eru tennurnar mínar orðnar 8 en, en nýjasta tönnin kom í gegn á sunnudaginn 6. ágúst. Nú er bara að bíða spenntur eftir jöxlunum Skrifað af Sebastían 05.08.2006 10:58Nýjar myndirÞað er fullt af nýjum myndum af mér á síðunni núna. Skrifað af Sebastían 04.08.2006 10:25Leikið í rigningunni og ferð á slysóÁðan fékk ég að leika mér í pollunum í götunni og fannst það ekkert smá gaman. Mamma klæddi mig í pollagallann minn sem er nú aðeins og stór en ég stækka bara uppí hann! Svo gengum við líka aðeins um götuna og fékk ég að skoða nágrannana sem við hittum á labbinu. Ég sé sko að ég þarf að vera duglegri að fara út að leika mér. En í gær fór ég upp á slysó á hraðferð. En ég hafði komist yfir poka sem koma oft í töskum ... í þessu tilfelli í nýjá reiðhjólahjálminum mínum ... og eiga að halda raka í burtu. Pokinn hafði verið settur á borðið ásamt leiðbeiningunum um hvernig hjálmurinn eigi að sitja á hausnum mínum og þar sem ég náði ekki upp á borðið almennilega átti þetta jú að vera öruggur staður. Nema hvað að ég tók mig bara til og hvolfdi borðinu! Ekkert að fara mjúkum höndum þar, eins gott að gera hluti bara almennilega ef maður gerir þá á annað borð. Þannig datt pokinn á gólfið og tókst mér að naga hann aðeins. Kom þar pabbi að mér og var fljótur að taka pokann út úr mér og vaða þar inn eftir einhverjum kúlum sem gætu verið þar - en að magninum enn í pokanum var ekki um margar kúlur að ræða sem ég gæti hafa borðar - og svo var ferðinni heitið upp á slysó. Þar var okkur vísað inn á barnabiðstofuna og þurftum sem betur fer ekki að bíða lengi eftir lækninum. Þar fengum við fær góðu fréttir að silicon kúlurnar í þessum pokum - alla vegna í okkar tilfelli - eru ekki hætturlegar og fékk ég því að fara heim að borða. Mamma tilkynnti mér það nú að hún vonaði að núna væri ég búinn með minn sysó kvóta, alla venga í náinni framtíð! Skrifað af Sebastían 02.08.2006 13:18Aftur kominn heimÞað er búið að vera smá flakk á mér undanfarið, en á þriðjudaginn í síðustu viku fór ég með Baldvin afa og Sigrúnu ömmu upp í sumarbústað og var hjá þeim aleinn fram á laugardag þegar mamma og pabbi komu og sóttu mig. Var ég heima á aðfaranótt sunnudags og fór þá aftur með mömmu og ömmu upp í bústað. Þangað komu líka Ási langafi og Ásta langamma og vorum við öll þar þangað til í gær. Ég er orðinn voðalega duglegur og geng með öllu og stend mjög auðveldlega þar sem ég vill standa upp. Er líka aðeins farinn að standa einn í labbirnar í smá stund en ekki voðalega mikið. Ég er meira að segja mikið í að sveifla mér í barnastólnum mínum uppi í bústað, en þar næ ég í eftri hutann á stólnum og lyfti voðalega flott upp fótunum og róla mér svo barasta. Í morgun fór ég með pabba að kaupa reiðhjólakerru og er ég voðalega montinn með hana, enda er ég voðalega flottur í kerrunni með nýja hjálminn minn . Mér finnst alveg voðalega gaman að sitja í kerrunni og það fór greinilega ekki illa um mig því að ég var steinsofandi þegar við pabbi komum heim. Skrifað af Sebastían 24.07.2006 13:07Standandi strákurÉg stóð sko alveg óstuddur í morgun og svo búinn að gera það nokkrum sinnum núna í hádeginu. Voðalega góður með mig Skrifað af Sebastían 23.07.2006 20:5710 mánaða töffariÉg var 10 mánaða í dag og er því orðið voðalega stór Mamma var að segja mér að hann Máni vinur minn væri kominn heim úr ferðalaginu sínu og fannst mér það ekki slæmar fréttir, enda hlakkar mig mjög til að hitta hann fljótlega aftur. En Davíð Goði vinur minn fer aftur á móti til útlanda á morgun ef við mamma munum rétt svo að það er eitthver tími þangað til að ég hitti hann aftur. Á þriðjudaginn er í að fara í smá ferðalag sjálfur, ég er að fara með ömmu og afa upp í sumarbústað og ætla að gista hjá þeim í nokkra daga á meðann pabbi er í vinnunni og mamma að skrifa ritgerðina sína. Það verður eflaust skrítið en alveg ábyggilega voðalega gaman, ég ætla nefnilega að hjálpa afa að mála viðarpallinn. Eins gott að hafa góðann verkstjóra! Skrifað af Sebastían 12.07.2006 11:3510 mánaða skoðunÍ morgun fór ég í 10 mánaða skoðun og mældist ég 73 cm langur og 9690 gr. Hafði því bara þyngst um rétt tæp 300 grömm. Enda er ég búinn að vera lasinn meira og minna allan júní mánuð. En núna ætla ég að vera duglegur að borða því ég fer í aukaviktun þegar ég er 11 mánaða gamall til að athuga hvort ég sé ekki að koma mér á rétt ról. Annars fór ég aftur á leikskólann í morgunn og grét bara ekki neitt þegar Agga tók við mér og fór með mig inn á leikskólann, en ég verð bara stutt þar í dag eða frá 11 til 3:30 því hún amma ætlar að sækja mig á eftir og þá ætla ég á smá flakk með henni. Skrifað af Sebastían 11.07.2006 11:53EyrnabólgaMamma fór með mig til læknisins í gær til að kíkja í eyrun mín og í stað þess að vera bara með vökva í hægra eyra eins og í síðustu viku er ég núna með vökva í báðum og þó nokkra mikla bólgur í hægra eyra en minni bólgur í vinstra eyra svo að lyfið sem ég fékk virðist ekki hafa virkað mikið fyrir mig. Læknirinn lét mig fá nýtt lyf og vonandi virkar það mun betur. Ég á að koma aftur í næstu viku þegar kúrinn minn er búinn hvort að bólgurnar séu ekki búnar. Ég var því heima með mömmu aftur í dag en ætla á leikskólann, að öllu óbreyttu, á morgun. Reyndar ekki fyrr en rétt um 11 leitið því að ég fer í 10 mánaða skoðun á morgun. Mamma og pabbi eru mjög spennt fyrir því að fá að vita hversu langur og þungur ég er orðinn. Skrifað af Sebastían 09.07.2006 16:18GmailÞá er ég orðinn rafrænn. Er kominn með gmail or er netfangið mitt SebastianJEinarsson@gmail.com Skrifað af Sebastían 08.07.2006 20:34Nýjar myndir og bæjarferðMamma var að klára að henda inn myndum sem hafa verið teknar núna í júlí svo endilega kíkjið á myndirnar mínar. Annars fór ég og mamma með Heiðu og Mána niður í bæ því við ætluðum að fara að fylgjast með Blátt Áfram hlaupinu. En þar sem mamma og Heiða eru báðar í Boot Camp og þjálfararnir þeirra voru þeir sem ákváðu að hlaupa 100 km frá Hellu og niður á Hafnarbakkann, ákváðu þær að fara og styðja kappana. Og biðum við eftir þeim við Höfðabakkann og var mikið fjör þegar þeir hlupu í hlaðið og stoppuðu í nokkrar mínútúr. Þegar þeir höfðu hlaupið aftur af stað keyrðum við Máni með mömmum okkar niður í bæ og stoppuðum á Subway í hádegismat og lá leiðin okkar svo niður á Hafnarbakkann en vorum við aðeins og lengi á leiðinni og misstum af því þegar þeir komu þangað niður eftir ... en það var svo sem alveg í lagi því að við hittum þá á Höfðabakkanum. Þegar hlaupið var búið kíktum við í Kolaportið og svo stoppuðum við á Austurvelli og fengum okkur nesti og epla Trópí. Það var voðalega gaman að stoppa þar og sitja í grasinu. Fengum við Máni að fíflast aðeins en urðum því miður þreyttir of snemma svo að við þurftum að leggja af stað í bílinn um 4 leitið, en ég sofnaði á leiðinni til baka. Skrifað af Sebastían 08.07.2006 09:19Pabbi kominn heimLoksins er hann pabbi kominn heim en hann átti að koma heim á fimmtudaginn, sama dag og hann fór út. En allt sem gat farið úrskeiðiðs hjá greyið kallinum fór úrskeiðis. Fyrst var svo mikil ókyrrð á leiðinni til París að það var enginn matur borinn fram. Svo þegar hann kom til París "skildi" enginn starfsmaður á flugvellinum ensku og loksins þegar hann komst í rútuna sem átti að flytja hann á milli flugstöðva setting gaurinn hann út á vitlausum stað svo að hann missti af vélinni sinni til Mílanó. Þega hann komst til Mílanó var ferðataskan hans týnd og hún var líka með verkfærunum hans sem hann þurfti til að gera við búnaðinn í Mílanó. Allir starfsmenn voru farnir af skrifstofunni svo að pabbi fór beint á hótelið sem honum hafði verið reddað. Ákvað að pannta sér pizzu en vegna svo mikils þrumuveðurs hrindi pizzarían í hann aftur og sögðust ekki geta komið með hana vegna veðurs, svo að hann pabbi kallinn fór svangur í rúmið. Svo á föstudagsmorgun gekk allt vel og honum tókst að laga það sem laga þurfti og koma sér út á flugvöll. Bara til að fá að vita að það var klukkutíma seinkun á fluginu hans frá Mílanó til París. Þegar til Parísar var komið var flugvélin rétt að koma þegar hún átti að vera að fara og fór því 40 mínútum of seint af stað en fyrir einhvern ótrúlega hátt lenti hún bara 5 mínutum og seint hérna á Íslandi. Svo að hann loksins kom heim til okkar mömmu í nótt og var alveg voðalega gaman að sjá hann í nótt þegar ég vaknaði. Skrifað af Sebastían 06.07.2006 09:02Gleymdi að segja frá þessu ......... en í dag komst ég alla leið inn á deildina mína, Putaland, áður en ég fór að setja upp skeifu. Svo það eru þó nokkrar framfarir hjá mér á hvejrum degi hvað varðar leikskólann. En svo mætti líka vera varðandi nætursvefninn minn en ég hef tekið upp á því að öskra og æpa í um 2+ tíma á næturna. Mamma er að velta fyrir sér hvort að það sé einhver aðskilnaðarkvíði þar í gangi því að ég er alltaf góður á meðan þau koma og standa við rúmið mitt! Eða kannksi vill ég bara stjórna Skrifað af Sebastían 06.07.2006 08:597 tennurSjöunda tönnin mín kom í gegn í gær og er ég því að vera verulega vel tenntur, en hún kom í neðri góm hægra megin við framtennurnar mínar. Enn er enn einhver pirringur svo að við erum að búas áttundu tönninni á næstu dögum, þ.e. niðri vinstra megin við framtennurnar. Skrifað af Sebastían Flettingar í dag: 323 Gestir í dag: 73 Flettingar í gær: 283 Gestir í gær: 76 Samtals flettingar: 29078 Samtals gestir: 9818 Tölur uppfærðar: 15.1.2025 16:55:03 |
Eldra efni
Tenglar
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is