Sebastían Jóhann Einarsson

Velkomin á heimasíðuna mína
Welcome to my website

14.05.2006 19:23

Sundkappi

Þetta er nú búin að vera ein heljarinnar sundhelgi hjá mér. Í gær skelltum við mamma okkur í sund með Davíð Goða og mömmu hans og skemmtum okkur alveg ágætlega. Við félagarnir fengum þær gömlu til að fara með okkur í útilaugina og var heitapotturinn með búblunum ekkert smá spennandi og hlógum við líka vel þegar þangað var komið.

Svo var sundtími í dag og hef ég bara sjaldan verið eins duglegur og í dag. Ég greinilega hef lært eitthvað í sundi því að þegar ég fékk að sitja á bakkanum hreinlega neitaði ég bara áð hreyfa mig og hætta á að ég myndi detta útí! Fannst mömmu og pabba þetta alveg gífurlega fyndið hvað ég var sposkur á bakkanum. En svo fírraði ég mér bara útí og var mjög svo duglegur að kafa þar sem eftir lifði tímans, ásamt því að nú komu engin hávaða öskur né neitt. Ég kvartaði eitthvað smá en ekki þannig að það heyrðist í mér fram í afgreiðslu!

Núna er ég líka orðinn flottur eftir allt þetta sund. Kominn með smá lit og meira að segja oggu pínu sundbuxnafar. Er meira að segja orðinn brúnni heldur en hann pabbi ... það að vísu þurfti nú ekki mikið til.

05.05.2006 08:49

Góða ferð mamma

Við pabbi verðum bara tveir heima um helgina, því að hún mamma er að fljúga til Manchester seinna í dag. En hún ætlar að vera þar fram á mánudag að heimsækja vinkonu sína.

Eins mikið og ég á eftir að sakna hennar held ég að hún eigi eftir að sakna mín miklu meira. Hún tók meira að segja einn af böngsunum mínum með sér ..... skrítin !!!

Annars vildi ég bara segja GÓÐA FERÐ MAMMA

03.05.2006 14:41

Nýjar myndir

Þá er hún mamma loksins búin að setja inn nýjar myndir á síðuna hjá mér svo endilega kíkið á hvað ég er orðinn flottur 

29.04.2006 21:53

Labbi labb

Núna er ég ekkert smá montinn!
Ef ég er í góðum stöðugum skóm get ég tekið nokkur falleg skref ef einhver heldur í hendurnar á mér, ég get það reyndar líka ef ég er á sokkunum / tásunum en þá eru þau ekki alveg eins flott. Svo get ég líka orðið staðið við sófann sjálfur er mér er hjálpað upp, en er ekki alveg búinn að fatta hvernig ég á að hreyfa mið meðfram honum því ég sleppi alltaf báðum höndum .... En mig vantar enn að geta komið mér upp sjálfu rað sófanum ásamt því að geta reyst mig aftur upp í sitjandi stöðu ef ég velt á magann eða bakið. Þetta kemur all á endanum, algjör óþarfi að flýta mér of mikið í einu.

26.04.2006 20:55

Stór strákur

Nú er ég sko orðinn stór strákur! Mamma var að breyta herbergjunum sem við erum með og er ég kominn núna með mitt eigið herbergi og sef í innra herberginu og mamma og pabbi í því fremra. Var ég voðalega ánægður með herbergið og leið mjög vel. Ég meira að segja kvartaði ekki þegar verið var að tannbursta mig sem er í fyrsta skipti núna í rúman mánuð, og ekki nóg með það heldur sofnaði ég bara sjálfur í rúminu mínu en það er komið á nýjan stað í herberginu.

Við mamma ætlum svo að skreyta örlítið meira, núna er ég með sæta gula bangsa á öðrum veggnum en á hinn veggin ætlum við að setja Nemó myndir, finna fatasnaga handa mér því að apinn minn sem passar slefsmekkina mína á það til að detta þegar búið er að hengja fötin mín líka á hann. Og svo það síðasta sem við ætlum að verða mér út um er hengi fyrir tuskudýrin mín. Og þá er ég voðalega vel settur.

Núna þarf ég bara að bjóða strákunum í heimsókn til að leika :-)

25.04.2006 18:14

Mamma!

Þá er þessu stigi náð, ég fór að tjá mig frekar ómarkvisst í gær en það kom svo skírt og skilmerkilega í dag: MAMMA.

Er þetta nú það all nýjasta á döfinni og tönglast ég á þessu mest allan daginn. Auðvitað er hún mamma að springa úr stolti. Og allir heima voðalega ánægðir með mig að ég skuli vera aðeins farinn að tjá mig. Núna er bara spurning hvernær ég fari að segja pabbi, en ég á það nú til bæði í dag og í gær að segja baba .. sem vill jú svo skemmtilega til að þýðir pabbi á færeysku og mætti alveg taka það fullgilt þar sem hann pabbi er jú hálf-færeyskur :-)

23.04.2006 18:51

Sund

Mér lá svo mikið á áðan að óska okkur Davíð Goða til hamingju með daginn að ég gleymdi að segja ykkur frá sundinu mínu.

En ég fór í fyrsta tímann minn í framhaldsnámskeiðinu og var alveg gífurlega gaman. Og samkvæmt mömmu og pabba var ég ekkert smá duglegur, stóð mig alveg eins og hetja. En ég kafaði og kafaði í dag og örskraði bara einu sinni hátt - var reyndar ósáttur einu sinni. Í dag lærðum við að passa okkur að detta ekki útí laugina. Fengum önd til að skoða af bakkanum en öndin var í lauginni svo að þegar við teygðum okkur í hana duttum við út í. Ég datt nokkrum sinnum út í en svo þegar ég fattaði þetta varð ég svolítið svekktur því að ég vildi ná í öndina en vildi ekki detta út í laugina. Svo að ég svo sannarlega lærði eitthvað nýtt í dag.

23.04.2006 17:04

7 mánaða ... vá

Núna er svo sannarlega orðin styttra í að ég verði 1 árs, en síðan ég fæddist.

Annars langaði mig bara að segja til hamingju með daginn til míns og Davíðs Goða :-) því við eigum jú afmæli í dag.

20.04.2006 15:22

Til hamingju með afmælið

Elsku María Rún, hjartanlega til hamingju með afmælið. Það var ógurlega gaman að sjá þig aftur eftir dálítinn tíma. Verðum nú að vera duglegri að láta foreldra okkar hittast!

20.04.2006 11:17

Gleðilegt sumar

Þá er víst sumarið byrjað samkvæmt dagatalinu og var pabbi eitthvað að minnast á að sumar og vetur hefðu frosið saman og þar af leiðandi ættum við vonandi að fá gott sumar. Við skulum bara vona að svo sé!

Annars vildi ég bara óska ykkur öllum gleðilegs sumars

19.04.2006 08:55

Til hamingju mamma og pabbi

Til hamingju með daginn í gær mamma og pabbi.
Mamma og pabbi áttu 5 ára brúðkaupsafmæli í gær og vildi ég óska þeim hjartanlega til hamingju með það.

18.04.2006 17:52

Og þá eru þær orðnar 5

Fimmta tönnin mín er komin í gegn og fannst hún í dag hægra megin í efri gómi. Hún kom okkur nú öllum á óvart því að enginn vissi eða grunaði að ég væri að fá fleiri tennur. Amma hafði að vísu eitthvað bent á að eitthvað væri á niðurleið en þá vinstra megin í efri gómi, svo það má segja að þessi tönn hafi læðst aftan að okkur!

16.04.2006 08:27

Gleðilega Páska

Gleðilega Páska

Vonandi hafið þið átt góða helgi og notið páskaeggjanna til fullnustu, en ég er ekki svo heppinn! En ég fæ ekki að borða páskaegg fyrr en á næsta ári þrátt fyrir að hafa fengið eitt egg í ár frá langömmu og langafa á Akureyri ... or brotið það strax!!

11.04.2006 13:17

Hr. fyrirsæta

Þá er það orðið opinbert, ég er bara á leiðinni inn í frægðina :-Þ Blaðið, þ.e. Fyrstu Skrefin, kemur í búðirnar á morgun en við sætu fyrirsæturnar fengum það í gær og erum við ekkert smá æðislega flott á myndunum.


Myndin er á bls. 35 í 2. tbl, Apríl 2006 í Fyrstu Skefin

04.04.2006 13:29

4 tennur

Jújú, þið lásuð rétt. Fjórða tönnin mín kom í gegn í gær. Svo að nú er um að gera að passa alla fingur því ég er mjög fljótur að krækja mér í þá og stinga þeim upp í mig.
Flettingar í dag: 505
Gestir í dag: 155
Flettingar í gær: 283
Gestir í gær: 76
Samtals flettingar: 29260
Samtals gestir: 9900
Tölur uppfærðar: 15.1.2025 17:16:08

Eldra efni

Tenglar