Sebastían Jóhann Einarsson

Velkomin á heimasíðuna mína
Welcome to my website

Færslur: 2005 Júlí

30.07.2005 17:58

Þá erum við komin heim

rubberduckie.gif

Þá er ég og mamma komin heim til Íslands og okkar tveggja vikna frí hjá pabba er víst búið. Tíminn svo sannarlega er skrítið hugatak ....

Ferðing gekk nokkuð vel, þrátt fyrir brösulega byrjun. Við áttum víst að fara í loftið klukkan 8:45 í gærkvöldi en ekkert varð úr því. Fengum reyndar enga skýringu á því en ætli það hafi ekki verið vegna þrumuveðursins sem var aðeins vestan við okkur og þá ekki hægt að fylla vélian af bensíni. En loksins klukkan 9:30 var farið í loftið og við komin út á braut og alveg að verða tilbúin til að taxera út, þá slökknar á öllu rafmagninu í vélinni og hún stóð dauð úti á stétt í nokkrar mínútur á meðan var verið að reyna að ná rafalinum í gang aftur sem er notaður á meðan verið er að kveikja á hreyflunum. En eftir þetta allt saman að var ferðin fín og gekk nokkuð hratt fyrir sig. Og þrátt fyrir alla seinkunina í loftið lenntum við bara 5 mínútum of seint í Keflavík. Þar dreif mamma sig bara í gegnum tollinn og út þar sem amma og afi biðu eftir henni. Það var nú gott að koma út í rok og rigninguna sem var klukkan 7 í morgun.

Svo þegar við komum heim var mamma í svo miklu stuði að hún bara tók upp úr báðum töskunum og náði að ganga nánast frá öllu áður en hún lagði sig. En það var sko erfitt að vakna og sváfum við alveg til klukkan 2. En drifum okkur þá á fætur og fórum á rúntin með Stebba og fengum okkur að borða.

Seinustu tveir dagar hafa verið nokkuð spes því að það voru svo miklir þrumustormar í Baltimore að síminn fór út og vorum við síma og internetlaus nánast allan fimmtudaginn. Þetta var nokkuð skrítið því að hún virkaði mjög svo vel á miðvikudaginn þegar mamma var að skila lokaverkefninu sínu, og svo á fimmtudaginn voru engin viðbrögð frá vélinni. Og það sem meira var, að ferðavélin hennar mömmu steindó í veðrinu og neitar að starta sér núna. En góðu fréttirnar eru þær að hún átti 13 daga eftir í ábyrgð svo að hún verður löguð. Við þurfum bara að bíða eftir að pabbi komi heim svo að við getum reynt að ná öllum gögnunum áður en hún verður send til Noregs í viðgerð. En á meðan fær mamma að nota tölvuna hans afa, veit ekki alveg hvað við myndum gera ef við hefðum ekki aðgang að tölvu einhverstaðar annars staðar!!!

Föstudagurin fór nú mest allur í bið þar sem mamma var búin að pakka, engin tölva og síminn var allur í veseni í íbúðinni. Það er að það er hægt að hringja úr honum ef snúar er tekin úr vegnum rétt áður en hringt er, en það er ekki hægt að hringja í númerið. En dagurinn var ekki svo lengi að líða og svo klukkan fimm kom pabbi heim með Joanne og hún skutlaði okkur út á flugvöll.

Annars vitum við mamma ekki alveg hvað við eigum að gera af okkur núna um helgina þangað til að við förum í vinnuna á þriðjdaginn. Ætli kvöldið í kvöld fari ekki mest megnis bara í að dúlla okkur og slappa af en við sjáum svo til hvað gerist á morgun.

26.07.2005 12:28

Árans hiti ....

rubberduckie.gif

Enn og aftur er fólki bennt á að halda sig inni hérna í Baltimore. Hittinn í dag klukkan fimm síðdegis á einungis að vera 38°C og með raka á hitinn að færast upp í 43°C. Get ekki sagt að okkur mömmu hlakki til að labba með pabba í búðina seinni partinn í dag.

Annars eru þær fréttir að við mamma fljúgum heim á föstudaginn í staðinn fyrir laugardaginn svo að við sleppum úr hitanum degi fyrr. Núna vonar mamma bara að góða veðrið sem er búið að vera heima verið áfram þegar við komum heim.

Sjáumst um helgina.

25.07.2005 13:42

31 vika

rubberduckie.gif

Loksins finnst okkur að tíminn líði eitthvað, og ekki hægt að segja annað en að við séum mjög svo ánægð með að vera komin svona langt og eiga bara 9 vikur eftir. Mamma og pabbi vilju nú reyndar meina það að ég sé sett/ur viku og seint svo að það séu í raunninni bara 8 vikur eftur. Og eins og það sé ekki nóg heldur pabbi því stöðugt fram að ég muni koma í heiminn 13. september ... sem hljómar nú ekki svo amarlega því að þá eru bara 7 vikur í mig. Held nú að mamma kvarti ekkert yfir því þar sem ég er aðeins farin/n að síga í. Ég var einmitt að uppgvöta lifbeinið hjá henni og finnst svolítið gaman að ýta aðeins við því, en henni finnst þetta nýja áhugamál mitt ekki eins spennandi því það sendir víst stuð alveg niður í fæturnar hjá henni þegar ég ýti.

24.07.2005 01:55

Washington, DC og Arlington

rubberduckie.gif

Mamma og pabbi fóru og léku ferðamenn í dag, byrjuðu daginn snemma með því að fara út á Baltimore-Washington International flugvöll til að ná í bílaleigubíl og þaðan var svo keyrt beint til Washington, DC. Og gekk sú ferð alveg furðu vel. Kom meira að segja á óvart að það var innan við klukkutíma keyrsla að komast þangað. Var nú ekkert voðalega skemmtilegt hverfi sem keyra þurfti í gegnum þegar komið var inn í Washington en það tilheyrir bara svona ferðum ... er það ekki????

Við vorum reyndar svo heppin að finna nánast strax bílastæði, en það virðist vera stórt vandamál í borginni. En er Washington, DC það vel hönnuð að það er nánst göngufæri í alla þá staði sem ferðamennirnir vilja fara á. Við byrjuðum á að kíkja á Hvíta Húsið, en það er víst ekki hægt að fara inn í það lengur nema að bóka tíma með marga vikna fyrirvara og allir útlendingar þurfa að fara í gegnum sendiráðið sitt til að fá að koma inn. Reyndist húsið nú aðeins minna heldur en við höfðum öll búist við en það gerir eflaust fjarlægðin sem við þurftum að vera frá því. Þaðan var ferðinni heitið beint yfir að Washington minnnismerkinu sem var reyndar bara furðu stórt og nokkuð flott. Ekki mikill tilgangur í því en flott engur að síður. Einnig stoppuðu mamma og pabbi ... og þar af leiðandi ég líka ... við minnisvarðann fyrir hermenn sem féllu í seinni heimstyrjöldinni og var þar mjög svo girnilegur gosbrunnur til að skella sér í því hittinn var alltof mikill í dag. Og þaðan er ekki svo langur gangur eftir "Reflecting Pool" sem Forest Gump óð útí í samnefndir mynd hér fyrir nokkrum árum. Fyrir botni þessa polls er heimili Abraham Lincolns og er hann mjög svo flottur. Mætti hafa aðeins færri tröppur upp til sín þar sem að þær eru þó nokkuð brattar og átti mamma í smá erfiðleikum með að klifra þær upp og halda jafnvægi í hitanum. Enda farið að fara þó nokkuð mikið fyrir mér. En klifurið var svo sannarleg þess virði því að styttan af kappanum er bara mjög svo flott. Einnig var útsýnið yfir að Washington minnismerkinu alveg hreint ótrúlegt. Seinasti staðurinn sem þau fóru svo í gegnum var minnisvarðinn um hermennina sem annað hvort týndu lífi eða hurfu í Víetnam stríðinu.

Stefnan var líka tekin á Arlington kirkjugarð í Virginíu fylki. En svo vill til að það sé innan við 10 mínútna keyrsla þangað frá borginni. Var rétt komið fram yfir hádegi þegar mamma og pabbi fóru þangað og stoppuðu þau því mjög svo stutt við. En þau gengu aðeins um og sáu þennan þvílíka fjölda af gröfum, og minnisvarðann og gröf  John F. Kennedy. Styttuna frægu þar sem verið er að reyna fánann að húni sáu þau þegar þau keyrðu framhjá en það var alltof langur gangur þangað í hitanum.

24.07.2005 00:59

Borgar sig stundum að vera óléttur ....

rubberduckie.gif

Það er alla vegna það sem við mamma höfum komist að á meðan við höfum verið hérna í Baltimore. En henni hefur verið hleypt fram fyrir í röðum, boðin uppfærsla á bílum og svo það sem gerðist í kvöld og voru bæði mamma og pabbi mjög svo ánægð með það. En við vorum að bíða eftir borði á Outback Steakhouse og höfðum beðið í um 20 mínútur eða svo og var biðin því rétt um hálfnuð. Kom þá þjónustudaman til þeirra og benti þeim á að það væri laus bás sem þau mættu grípa, sem þau auðvitað gerðu þar sem að það er miklu betra að sitja á bás heldur en við venjulegt borð og plús biðtíminn varð helmingi styttri fyrir vikið.

18.07.2005 20:04

Engin loftræsting

rubberduckie.gif

Úff það er sko heitt hérna í Baltimore í dag, og ekki gerir rakinn þennan hita þægilegri. En hingað til hefur loftræstingin alveg bjargað málunum hjá okkur. En það sem kom upp á hjá okkur sennilega í nótt eða snemma í morgun er það að loftræstingin bilaði. Hún blæs en hún kælir ekki neitt. Svo að okkur mömmu hefur verið nokkuð heitt í dag, en sem betur fer vorum við ekki búin að draga frá neinum gluggum - ekki það að maður eigi að gera það þegar sólin skýn svona sterkt úti og hitar svona mikið - svo að það var svalt í íbúðinni fram eftir degi. En núna sitja mamma og pabbi og bíða eftir húsverðinum sem ætlar að koma fyrir klukkan fimm og kíkja á loftræstinguna, og vonandi text honum að laga hana því að annar svona heitur dagur er ekki eitthvað sem okkur langar til að upplifa aftur.

18.07.2005 11:45

30 vikur

rubberduckie.gif

Þá er komið að því, að ég er búin/n að vera í ofninum núna í 30 vikur og á því bara 10 vikur eftir ... vonandi ekki meira. Það er nú algjört æði að eiga bara 25% eftir og lítur þetta allt saman miklu meira spennandi út þegar maður þér þetta núna heldur en þegar ég var komin/n 10 vikur og átti 30 eftir. Úff, við erum nú nokkuð ánægð að þetta sé allt saman að verða búið hjá okkur.

Pabbi ætlar að taka myndir af kúlunni minni í kvöld þegar hann kemur heim úr vinnunni svo að þá bætast nokkrar nýjar myndir við af mér. Ekki amarlegt að láta taka svona mikið af myndum af sér.

17.07.2005 12:06

Hitaviðvörun

rubberduckie.gif

Það hefur verið gefin út viðvörun varðandi hita í dag svo að okkur er sagt að forðast sólina og drekka mikið, þar sem hitinn eigi að vera rétt fyrir 30°C en hita indexinn með rakanum eigi að fara yfir 40°C sem er jú aðeins of heitt fyrir okkur. En þetta var nú nokkurn vegin það sem við mamma vorum með á okkar plani í dag. Við ætlum reyndar að keyra með pabba inn til Hagerstown í Prime Outlets sem eru þar, og sjá hvort að við finnum eitthvað sniðugt. En pabba bráðvantar nýja inniskó / íþróttasandala þar sem hans voru að gefa upp öndina.

Annars er klukkan nú bara rétt um 8 hérna og erum við mamma búin að vera á fótum núna í um tvo og hálfan tíma. Held að pabbi sé búinn að fá nóg af rápinu í okkur því að við erum alltaf að koma og tala við hann annars lagið, þar sem mamma er að gera allt sem hún getur til að þurfa ekki að setjast niður og vinna verkefnið sem hún á að skila á morgun. En við eigum einmitt að vekja pabba eftir um klukkutíma þar sem allt opnar klukkan 11 á sunnudögum og það er best að koma sér út áður en hitinn verður of mikill.

En hvernig líst ykkur á öndina og nýja útlitið á síðunni? Mamma var að tala við Stíg í gærkvöldi og fékk hann til að búa til eitt svona hlutlaust útlit fyrir mig.

16.07.2005 23:50

Don Pablos

bangsar.gif

Hérna sit még með mömmu og skrifa ykkur frá Columbia, MD sem er eitt af úthverfum Baltimore. Ekki svo amarlegur staður, alla vegna ekki við fyrstu sýn. En við mamma komum hingað í gærkvöldi til að dvelja með pabba í hálfan mánuðu á meðan hann er að vinna.

Vorum við vel þreytt þegar við komumst á leiðarenda í gær, enda fór vélin ekki í loftið fyrr en m 40 mínútum of seint frá Keflavík og svo lenti hún líka aukalega á eftir áætlun og vorum við ekki komin út til pabba fyrr en rétt upp úr 20.30 í stað 18.40. En allir voru annars alveg frábærir og fengum við mamma alveg frábæra þjónustu hvort sem það var frá IcelandAir starfsfólkinu, mönnunum í röðinni í útlendingaeftirlitinu sem hleyptu okkur framar í röðinni, maðurinn sem hjálpaði mömmu að gríða töskurnar okkar af færibandinu og setja og kerruna til tollvarðanna sem voru ekkert nema liðlegheitin.

Það var sko gott að geta sett lappirnar upp í loftið þegar við mættum á leiðarenda því að öklarnir voru nú orðnir þó nokkuð þrúttnir. Hjaðnaði þrotinn þó nokkuð í nótt en er að mestu kominn aftur enda erum við búin að vera á fótum núna og á fullu í allan dag. Fórum í Target, Wal Mart, Barnes & Nobles og Micheals. Við ætluðum í Babies R' Us en fundum ekki staðsettningurna á Never Lost kerfinu í bílnum svo að við ætlum bara að skreppa þangað á morgun. Svo á öllum þessum þvælingi sáu mamma og pabbi Don Pablos (http://www.donpablos.com/home/p_home.cfm) sem er Mexíkóskur veitingastaður og vissu þau sko strax hvar við myndum borða í kvöld. En þau höfðu farið á þennan stað þegar þau voru með ömmu Sigrúnu og afa Baldvin á Orlando fyrir tveimur árum og voru ekkert smá ánægð. Ég aftur á móti var ekki alveg eins ánægð/ur með matinn þar sem hann var aðeins í sterkari kanntinum og var ég fljót/ur að láta mömmu vita.

Við höfðum planað að keyra til Washington, DC og skoða okkur um fyrst það er rétt um klukkutíma keyrsla eða svo en þar sem það á að rigna á morgun ákváðu mamma og pabbi að fara bara um næstu helgi og skoða sig um. Og fara þá bara í outlettið á morgun og athuga hvort þau geti ekki fundið Babies R' Us á morgun. Svo ætlar mamma bara að slappa af í vikunni og vera með tærnar upp í loftið og lesa og læra.

Bestu kveðjur úr hitanum og rakanum héðan úr Baltimore.

13.07.2005 16:32

Bílinn kominn heim

bangsar.gif

Þá er það vesen búið, mamma fór og sótti bílinn á verkstæðið í dag. Bara mörgum dögum á undan áætlun. Og var hún ekkert smá fegin að fá bílinn aftur. Hún var reyndar ekki komin langt þegar vélarljósið kviknaði en snéri bara strax aftur við á verkstæðið og þeir stungu tölvunni í samband við bílinn og svo hreyfði kallinn einhverjar slöngur og þá var allt komið í lag. Væntanlega bara eitthvert lofttæmi sem var á kerfinu og síðan þá er bílinn búinn að vera algjör engill. Meira að segja handbremsan er betri heldur en áður en hann fór á verkstæðið!

12.07.2005 22:09

Vesenið var víst minna með bílinn heldur en búst var við

bangsar.gif

Bifvélavirkinn hringdi í dag, og sagði að hann væri búinn að gera við bílinn og að mamma mætti koma og sækja hann á morgun. Sem kom skemmtilega á óvart, sérstaklega þar sem að ekki átti að fara að vinna í honum fyrr en 19. júlí. Og svo það sem kom hvað skemmtilegast á óvart var að verðið var miklu minna heldur en mamma og pabbi voru búin að búast við. Yay.

11.07.2005 18:22

29. vikna skoðun

bangsar.gif

Mamma og ég fórum í skoðun í dag og lítur allt saman mjög svo vel út og virðist ég bara dafna eins og blóm í eggi. Enda ekki nema um 11 vikur eftir núna svo að það er farið að sjá nokkuð á henni mömmu.

Það voru allir pappírarnir komnir frá sjúkrahúsinu eftir að mamma var löggð inn þann 1. júlí með grun um meðgöngueitrun og kom ekkert út úr öllum prófunum og erum við því mjög svo ánægð með það. End mjög svo gott að sleppa við allt svona auka vesen. Niðurstöðurnar úr sykurþolsprófinu komu líka og var það auðvitað neikævtt eins og við vissum svo sem. Svo að ljósmóðirin sagði það sama og læknirinn sagði við mömmu þegar hún fékk að fara heim af sjúkrahúsinu, eða góða ferð. Svo að við mamma förum með góða samvisku að hitta pabba í Baltimore á föstudaginn. En hann er einmitt á leiðinni í loftið núna.

Góða ferð pabbi.

11.07.2005 17:57

Bílavesen

bangsar.gif

Þá erum við komin aftur heim til Reykjavíkur eftir ferða helgi til Vestfjarða. Ekki var þessi verð til að auka áhuga foreldra minna á vestfjörðunum meira heldur en það hefur verið hingað til.

Ferðin byrjaði jú ágætlega en það fór fljott að halla undan fæti. Jæja, fyrsta uppákoman átti sér stað strax í Mosfellsbæ eftir um 15 mínútur í bílnum. En þá fattaðist að myndavélin hafði orðið eftir. Ekkert stór mál svo að mamma og pabbi ákváðu að keyra áfram í stað þess að snúa við og ná í vélina. Enda áttu þau panntað far með Flóabátnum Baldri og ekki má vera seinn í þann bát ef maður ætlar með. Þau komust á Stykkilshólm rétt upp úr þrjú svo að allt leit vel út og komumst við öll um borð í bátinn. Það er svo sem ekkert frásögufærandi nema hvað að það var svo vont í sjóinn að við urðum öll alveg hrikalega sjóveik og meira að segja pabbi sem er nú yfirleitt með stálmaga varð nokkuð grænn. Mamma greið ældi eins og múkki og ég lét sko fyrir mér finna og var ekkert að skafa utan af því að mér fannst þessi bátsferð ekkert góð hugmynd!!

Loksins komumst við yfir á Brjánslæk og þá var rétt undir klukkutíma eftir inn á Patreksfjörð. En við gistum þar hjá Árna frænda og fórum svo og hittum allt liðið inni í Hænuvík á laugardagsmorguninn. En eftir að hafa farið yfir í Hænuvík var farið á Byggðarsafnið á Hnjóti og heilsað upp á fólkið þar, en Jói afi heitinn var safnvörður þar. Svo komu Sigríður langaamma og Guðrún frænka með okkur mömmu og pabba og Árna frænda inn á Patreksfjörð aftur. En okkur var greinilega ekki ætlað að fara alla leið þar sem að við komumst inn að Ósi þegar það fórum að heyrast einhver óhljóð í bílnum og við stoppuðum til að athuga hvað væri að. En vildi svo til að þegar við störtuðum bílnum aftur vildi hann ekki hreyfa sig úr stað. Sem betur fer var heppnin með okkur að Ægir vinur Árna frænda átti leið hjá og gat tekið okkur fimm upp í bílinn sinn og sögðum við skilið við bílinn hjá mömmu og pabba.

Þegar við vorum komin heim á Patreksfjörð fór pabbi og Árni frændi með Ægi til að kíkja á bílinn og athuga hvort það vantað bara sjálfskiptingarvökva á bílinn. En svo var víst ekki málið og leit út fyrir að það væri loft í vökvanum. Svo að þeir komu allir aftur í bæinn en bílinn varð eftir. Árni frændi ræsti út vin sinn sem keyrir vörubíl og átti hann með krana svo hægt var að lyfta bílnum upp á vörubílspallinn og ferja hann inn á Patreksfjörð. Um kvöldið kíktu svo pabbi og Árni frændi á bílinn og hreynsuðu síuna þar sem ekki var hægt að fá síu á Patreksfirði og fór bílinn þá af stað þegar honum var starað. Svo að allt leit svo sem ágætlega út.

Svo að á Sunnudaginn þegar mamma og pabbi voru að fara í Sauðlauksdalskirkju var bílinn skilinn aftur eftir á Ósi svo að hann þyrfti ekki að fara á malbikið. Og var þeim bara skutlað aftur þangað eftir kaffidrykkjuna að Hnjóti. Eftir að þau hófu ferðina upp Kleifarfellið fór hljóðið að koma aftur svo að það var ara drifið sig inn á Bránslæk. Og var þar vonað að bílinn myndi hreyfa sig þegar kæmi að því að ferja hann inn í Baldur. En mamma og pabbi höfðu svarið þess að þau myndu ekki fara aftur með Baldri en það var víst ekki mikið val núna þar sem "spara" þurfti sjálfskiptinguna.

En bílinn komst um borð í Baldur og var sú verð nú mun þægilegri heldur en föstudagsferðin var. En mamma var fljót niður að pannta kojur handa sér og pabba svo að þau gætu legið mest alla ferðina. Amma og afi hittu svo mömmu og pabba á bakkanum á Stykkilshólmi og var bílinn skilinn eftir til að vera sóttur seinna. En afi fór í dag með kerru til að ferja bílinn í bæinn. Svo að núna er hann kominn á verkstæði og fer í viðgerð í næstu vikur og verður vonandi orðinn fínn og góður þegar ég og mamma komum heim frá Baltimore um Verslunarmannahelgina.

En þessi helgi var algjör kvöl og pína fyrir fjölskyldubílana. Bílinn hjá ömmu fyrir vestann varð rafmagnslaus og startarinn hjá henni er að deyja, bremsurnar hjá Hildi frænku og Gylfa frænda skemmdust víst eitthvað, einhver spaði í bílnum hjá Hildi frænku, Sóla frænka og Hafsteinn urðu bensínlaus, og svo sprakk hjá Grétari frænda og hann keyrði á aumingjanum inn til Patrekfjarðar til að fá nýtt dekk. Svo á leiðinni hans til baka inn á Hænuvík sprakk svo á öðru dekki svo að hann endaði aftur á aumingjanum. Má sko segja að þessi helgi hafi ekki verið bílvæn fyrir fjölskylduna.

10.07.2005 11:54

Spurning um stærð og þyngd

Mamma ákvað að taka Halldór á orðinu og setja upp könnum um hversju stór og þung/ur ég mun verða við fæðingu.

 

Bumbubúi
Hversu stór heldurðu að ég eigi eftir að vera við fæðingu? / What do you think my birth length will be?
- 48
48
49
50
51
52
53
54
55
+ 55
Bumbubúi
Hversu þung/ur heldurðu að ég verði?
- 12 merkur
12 merkur
13 merkur
14 merkur
15 merkur
16 merkur
17 merkur
18 merkur
+ 18 merkur

05.07.2005 10:27

Skoðannakönnun - hvort heldurðu að ég sé?

bangsar.gif

Mamma og ég bjuggum til litla skoðannakönnun um hvort að þið hélduð að ég væri stelpa eða strákur og hlakkar okkur mjög svo til að sjá hvað þið segið.

Bumbubui
Which do you think I am?
Not sure
A boy
A girl
Flettingar í dag: 323
Gestir í dag: 73
Flettingar í gær: 283
Gestir í gær: 76
Samtals flettingar: 29078
Samtals gestir: 9818
Tölur uppfærðar: 15.1.2025 16:55:03

Eldra efni

Tenglar