Sebastían Jóhann Einarsson

Velkomin á heimasíðuna mína
Welcome to my website

Færslur: 2005 Ágúst

31.08.2005 16:21

blomalina.gif

Til hamingju Sigurveig með litlu dömuna.

Frábært að heyra að allt gekk vel. Hlökkum til að sjá myndir og svo dömuna sjálfa þegar við komum saman með krílin.

31.08.2005 10:45

Var sem betur fer bara eitthvað tilfallandi

rubberduckie.gif

Þá erum við mamma komin heim eftir að hafa farið niður á Lansann í morgunn, þar sem við vorum sett í mónitor í Dagönn. Hafði blóðþrýstingurinn fallið vel hjá mömmu og ég kom mjög svo vel út úr skoðununum. Eru einhverjir samdrættir farnir að gera vart við sig en ekkert sem við mamma erum enn að taka almennilega eftir svo að það var ekkert gefið út á það.

Svo að þegar allt kom til alls, að þá hefur þetta bara allt saman verið eitthvað tilfallandi sem betur fer því að það mældist heldur ekkert prótín hjá mömmu. Eigum við því bara að vera heima og slappa af með tærnar upp í loftið og bíða eftir að ég ákveð að koma í heiminn.

30.08.2005 10:36

Vesen á okkur mömmu

rubberduckie.gif

Þá erum við mamma búnar/búin að fara í 36 vikna skoðunina og er allur bjúgurinn, ásamt prótíninu sem mældist og hækkandi blóðþrýstingi eitthvert áhyggju efni og erum við mamma því á leiðinni inn á Dagönn á morgunn í athugun. Var svo mikið að gera hjá þeim í dag að við fengum tíma á morgun. En vonandi er það ekkert vesen og að við fáum bara að heyra hjartsláttinn minn og fara svo heim. Hljómar ekkert voða spennandi að vera komin með meðgöngueitrun á byrjunarstigi svo að við mamma ætlum bara að vera dugleg/ar að slappa af með lappirnar uppi í lofti og vinna að lokaritgerðinni hennar mömmu sem hún á að skila í næstu viku.

En annars leit allt annað bara mjög vel út, lítil þyngdaraukning og þá sérstaklega miðað við alla bjúginn, ég í höfuðstöðu og lít bara út fyrir að vera meðal kríli og er bara búin/n að koma mér mjög svo vel fyrir svo að ég ætti ekkert að fara að snúa mér við á næstunni. Hjartslátturinn minn var líka mjög fínn eins og venjulega. Í rauninni var allt eins og venjulega nema hvað fyrir utan prótínið og blóðþrýstinginn hennar mömmu.

En vonandi kemur allt saman bara mjög vel út á morgun og við erum bara send heim í afslöppun og þurfum ekki að sjá spítalann meir fyrr en daginn sem ég kem!

28.08.2005 17:23

Ætli eitthvað eigi eftir að gerast fyrr??

rubberduckie.gif
Núna er verið að velta fyrir sér hvort ég muni láti sjá mig aðeins á undan, mamma er búin að vera með þó nokkuð mikið af fyrirvaraverkjum og svo bættust við vægir samdrættir við í dag sem eru aðeins reglulegri heldur en þeir hafa verið hingað til. Við förum til ljósmóðurinnar á þriðjudaginn svo að við ætlum auðvitað að spyrja hana út í þetta, hvort þetta geti merkt eitthvað. En við höfum nú hingað til heyrt að þetta gæti þýtt að ég komi fyrr og að við gætum bara þurft að sætta okkur við þetta næstu fjórar vikurnar svo að við í rauninni vitum ekki neitt!!! Sitjum bara og bíðum.

Annars er mamma að biðja mig um að bíða fram að 7. september alla vegna því að hún þarf að skila lokaritgerðinni sinni þann dag og myndi víst vilja ná að gera það áður en ég lít dagsins ljós. En þá fær Ólöf frænka mig bara í þrítugsafmælisgjöf.

27.08.2005 11:46

Heiða frænka á landinu

rubberduckie.gif

Við fórum í fondú mat í gær, með systkinunum hans Jóa afa, sem fór bara ágætlega í mig, ég hef alla vegna ekki kvartað við mömmu enn sem komið er svo við fastlega búumst við að sleppa fyrir hornið núna. En ég er víst þó nokkur matargikkur - vonandi er það ekki eitthvað sem á eftir að festast. En það er þá víst ekki langt fyrir mig að sækja það þar sem mamma er nú óttarlegur matargikkur sjálf, pabbi tilkynnti það snemma að hann yrði sá sem myndi kenna mér að borða mat svo ég myndi ekki herma bara eftir mömmu og ekki borða allt!! Vonandi gengur það eftir. Fannst mömmu bara nokkuð gaman að borða svona mat aftur, eru víst nokkur ár síðan hún hafði fengið að dúlla sér með svoleiðis. Líka fínt því að þá lengir það setuna við matinn, en við Íslendingarnir erum víst of fljót að borða skilst mér!! 

Og svo var auðvitað alveg frábært að hún Heiða frænka var í heimsókn, hún kom alla leið frá Englandi í nokkra daga með eldri stelpuna sína. Ég verð víst að bíða aðeins með að vera formlega kynnt/ur fyrir henni þar sem þær verða farnar aftur áður en ég kem en það er alveg nógur tími til þess. Kannski ég fari bara í heimsókn með mömmu og pabba og hitti Heiðu og hennar fjölskyldu úti einhvern tímann.

Góða ferð út aftur Heiða og Ester ef við heyrum ekki í ykkur áður en þið farið.

 

25.08.2005 14:41

Rob Schneider

rubberduckie.gif

Ég fór með mömmu og pabba í Smárabíó í gær að sjá nýjustu myndina með Rob Scheider: Duce Bigalow, European Gigalo, hún var nú svo sem ekkert merkileg en átti sína punkta. Kallinn er aftur á mót þó nokkuð stuttur, og var nokkuð gaman að hlusta á hann halda littla tölu áður en myndin byrjaði. Var greinilega búinn að æfa sig aðeins í íslenskunni og náði að staula nokkrum frösum upp úr sér.

En annars var þessi mynd alveg klassísk vídeó mynd, þegar maður er í hálfvitlausu stuði.

22.08.2005 11:13

Labbi labb

rubberduckie.gif

Við mamma erum byrjuð að labba á hverjum degi núna, lúxus að vera svona í fríi að maður getur gert það sem manni hentar ... eða svo hefði maður haldið. En öllum í húsin tókst að vekja okkur mömmu áður en klukkan varð 8:20 í morgun, og svo gleymdi afi símanum sínum heima og pabbi lyklunum sínum svo að upp úr 9 þurfti mamma að drífa sig út og redda því fyrir þá báða. Svo var gluðað heim því að núna erum við farin að labba á hverjum degi með Heiðu og bumbubúanum hennar, en Heiða er sett 12. september. Fínt að hafa einhvern svona til að fara út með á morgnanna til að hressa sig við og hreyfa sig aðeins líka.

21.08.2005 13:46

Þá er mamma hætt að vinna

rubberduckie.gif

Það er sko kominn tími til að við skrifuðum hérna, uss liðinn tæpur hálfur mánuður. Mömmu finnst tíminn líða svo hratt núna að henni takist varla að snúa sér við án þess að vika líði. En það er vonandi að næstu vikur verði líka svona fljótar að líða hjá henni mömmu, svo henni leiðist ekki.

En annars eru nýjustu fréttirnar þær að hún mamma er hætt að vinna, föstudaginn var seinasti dagurinn hennar. Svo að núna erum við bara heima að gera klárt fyrir mína komu í heiminn. Það eru  nú allir allt í einu hættir að tala um að ég komi í október og farin að tala um að ég kom bara aðeins fyrr í september í staðinn. Það verður gaman að sjá hvernig það fer, en mamma er alveg pottþétt á því að hún sé sett viku of seint svo að ég ætti í rauninni að koma 19. september en ekki 26. Það hljómar líka miklu betur því að þá eru bara 4 vikur eftir í staðinn fyrir 5 vikur. Amma og afi vilja líka alveg ólm að ég komi fyrr í heiminn þar sem þau fara til Tyrklands 27. september.

Svo má auðvitað ekki gleyma þeim fréttum að ég er komin/n í höfuðstöðu og er hægt og rólega að koma mér fyrir fyrir stóra daginn. En ljósmóðurinni fannst ég nú fara nokkuð snemma í höfuðstöðu, en plúsinn við að fara svona snemma í höfuðstöðu er að þá eru minni líkur á að ég snúi mér við og setjist bara í staðinn fyrir að standa á haus.

Annars erum við mamma búin að standa í stórþvotti í dag, hún mamma tók upp á því að fara að þvo öll fötin mín og strauja svo að þau verði tilbúin þegar ég kem í heiminn. Svo settu pabbi og Stefán Már kommóðuna mína saman í gær svo að núna hafa fötin mín einhvern samastað.

04.08.2005 12:39

32 vikna skoðun

rubberduckie.gif

Þá erum við mamma búin að fara í 32 vikna skoðun og auðvitað koma allt saman mjög vel út. Við þyngdumst reyndar aðeins of mikið og ætlum því að reyna að passa okkur núna, ljósmóðirin (fengum nýja í þetta skipti og næstu tvö skipti þar sem Ingibjörg ljósmóðir er í fríi) sagði reyndar að eitthvað af þessari þyngd gæti verið vegna þess að mamma er komin með nokkuð mikinn bjúg á fæturna.

Annars er ég bara mjög hraust/ur, með góðan hjartslátt (125-150 bpm) og bara strax komin í höfuðstöðu, það var nú reyndar það sem mömmu og Ingibjörgu ljósmóður grunaði í seinasta tíma. Og svo var auðvitað blóðþrýstingurinn í lagi og alveg eins og hann átti að vera og hefur verið.

Ljósmóðirin sagði mömmu endilega að kíkja í heilsuhúsið og fá sér vatnslosandi te til að reyna að slá á bjúginn, sem við gerðum og erum byrjuð að drekka það. Og er það bara alls ekki slæmt á bragðið, sem kom okkur nokkuð á óvart. En fögnum því bara.

Núna er vika þangað til að pabbi kemur heim, svo að hann rétt nær í næsta tíma hjá okkur mömmu með ljósmóðurinni. Það verður sko gott að fá kallinn heim, kannski munum við sofa betur þá. En ætli svefnruglið á okkur sé nú ekki aðallega bara áunnið núna þar sem við eigum voðalega erfitt með að koma okkur vel fyrir og svo eru það auðvitað þessar tíðu baðherbergisferðir á næturnar og brjóstsviðinn sem við vöknum nú yðurlega upp með á hverri nóttu núna. En kannski lagast það bara allt saman þegar pabbi kemur heim ... mmm ... má alltaf láta sig dreyma er það ekki????

  • 1
Flettingar í dag: 323
Gestir í dag: 73
Flettingar í gær: 283
Gestir í gær: 76
Samtals flettingar: 29078
Samtals gestir: 9818
Tölur uppfærðar: 15.1.2025 16:55:03

Eldra efni

Tenglar