Sebastían Jóhann Einarsson

Velkomin á heimasíðuna mína
Welcome to my website

Færslur: 2005 Nóvember

04.11.2005 22:12

6 vikna

Þá er ég orðinn sex vikna gaur og stend mig alveg frábærlega. Er farin a brosa miklu meira heldur en ég hef gert undanfarið og er svo farinn að reyna að tala við mömmu og pabba, og hefur því hjalinu mínu farið mjög svo fram fjölskyldunni til mikillar ánægju.

Nýjust fréttirnar mínar eru að ég hef skipt um þurrmjólk og er ég allt annar, virðist vera minna um magakrampa og er óværðin mín einnig minni. Ætli þetta sé ekki líka ein af ástæðunum fyrir því að ég er farinn að brosa miklu meira. Virðist mér bara líða í alla staði miklu betur á þessari þurrmjólk.

02.11.2005 15:25

Nýtt rúm

Ég er sko kominn með stóru strákarúm núna. En mamma rauk út í gær til að kaupa rimlarúm handa mér. En ástæðan fyrir þessari flýti var sú að mér tókst að hvolfa vöggunni minni í fyrri nótt. En sem betur fer var pabbi nógu snöggur að grípa vögguna svo að ekkert gerðist. Ég meira að segja tók ekki eftir neinu og svaf bara á mínu græna eyra.

02.11.2005 15:22

6 vikna skoðun

Þá er ég kominn heim úr 6 vikna skoðuninni minni og er ég voðalega flottur og fínn strákur. Mældist 57 cm og 5430 gr sem er rúmu hálfu kílói meira heldur en þegar ég var viktaður fyrir 2 vikum.

01.11.2005 15:20

Til hamingju með afmælið Inga frænka

Hjartanlega til hamingju með afmælið elsku Inga Kristín.

Þar sem þú ert í New York og ég get ekki gefið þér afmælisknús færðu bara eitt stórt KNÚS hérna yfir og alvöru knúsið verður að bíða þangað til að þú kemur heim og heimsækir mig.

Knús knús,
Sebastían

Flettingar í dag: 638
Gestir í dag: 208
Flettingar í gær: 283
Gestir í gær: 76
Samtals flettingar: 29393
Samtals gestir: 9953
Tölur uppfærðar: 15.1.2025 19:37:11

Eldra efni

Tenglar