06.06.2006 13:05
Í morgun fór ég í fyrsta skipti á leikskólann. Mamma og pabbi komu með mér og var ég á aðlögunarstofunni í um 50 mínútur. En þangað á még að mæta væntanlega þangað til að ég fer í fríi í júlí. Það voru tvær dömur á deildinni líka og var voðalega gaman að leika við þær, þær voru reyndar orðnar skriðfærar svo að þær skriðu bara yfir mig en mér var svo sem alveg sama um það. Samkvæmt mömmu og pabba stóð ég mig bara voðalega vel og að vonandi verður það svona auðvelt næstu daga. En við mamma mætum aftur á morgun klukkan 9:30 og verðum til hálf ellefu en hún mamma á að fara út í svona 10-15 mínútur og svo hægt og rólega lengjum við dagana mína.