Sebastían Jóhann Einarsson

Velkomin á heimasíðuna mína
Welcome to my website

07.07.2007 22:52

Kominn tími fyrir uppfærslu / Time for an update

Það er nú löngu kominn tími til að uppfæra síðuna mína, en hún mamma er búin að vera svo upptekin í húsinu að hún hefur ekki haft tíma til að uppfæra síðuna fyrir mig.

En það helsta sem er að frétta af mér er það að mig vantar bara tvær tennur núna til að verða fulltenntur og verð ég voðalega feginn þegar ég losna við allt þetta slefvesen.

Annars er ég í fríi allan júlí mánuð og nýt þess í botn. Það er voðalega gaman að fá að vera heima með mömmu og ömmu og snúast með þeim, en mér er sko alveg sama þó svo að það sé verið að vesenast út um allan bæ.

Um daginn var ég að príla uppi í sófa og henti mér fram úr, sem hefði svo sem ekkert verið neitt sérstaklega þægileg lendin hefði ég farið beint á gólfin. En svo var ekki raunin, heldur lenti ég á arminum á hægindarstólnum mínum og marðist all illilega á kinninni minn. Markið er búið að vera þar í nokkrar vikur en er loksins að minnka.

Ég er farinn að segja alveg heilan helling af orðum og bætast ný og ný orð alltaf við hjá mér nánast daglega.

Það er mikið fjör á hóli núna en afi Klemens kom frá Danmörku um síðustu helgi og er alveg gífurlega gaman að hafa tvo afa til að hlaupa á eftir mér.

Ég tók nokkuð stórt skref í dag, en hingað til hef ég alltaf sagt mömmu frá þegar ég er búinn að kúka en núna sagði ég henni það áður en ég kúkaði. Fór ég og settist á stóra klósettið en ekkert kom, er ekki alveg búinn að fata hvernig ég á að rembast á klósetinu en það kemur bara allt saman á endanum. Tökum bara eitt skref í einu.

---

It is way over due for an update, but mom has been so terribly busy at the house that she just hasn't had the time to update my website for quite the while.

As of now I am only two teeth away from having them all, and boy ohh boy will I be thrilled to get rid of all this drooling business and getting sick and tired of always being wet!

At the moment I am on vacation from the daycare and am loving it. I spend the day with mom and grandma and enjoy running errands with them all over the place.

The other day I was climing and jumping on the couch and threw myself of from it, the landing by itself would have been rather uncomfortable if I would have landed on the floor. However, that was not the case as I landed on my lounge chair and hit my chin on it which was extremely brused and is just now getting back to its normal shade.

I am adding new words to my vocabulary every day.

My grandpa came over from Denmark so I am enjoying the extra attention these days to the fullest. Not bad to having two grandpa's running after you.

I hit a very big milestone today. For a while I have been telling mom when I have pooped, but today I told her before I did. So we went to the toilet but nothing came. I havn't exactly figured out how to push while on the toilet. But we are just taking one step at a time.
Flettingar í dag: 390
Gestir í dag: 8
Flettingar í gær: 135
Gestir í gær: 3
Samtals flettingar: 115144
Samtals gestir: 18461
Tölur uppfærðar: 11.5.2026 15:36:40

Eldra efni

Tenglar