Sebastían Jóhann Einarsson

Velkomin á heimasíðuna mína
Welcome to my website

05.07.2006 13:38

Er að verða sáttari

Síðasta vika var ekki sú auðveldasta á leikskólanum hjá mér en ég var heima á föstudag vegna þess að ég fékk hita á fimmtudagskvöldi og fóru mamma og pabbi með mig til læknisins á föstudag og var ég kominn með vökva í hægra eyrað mitt og fékk ég því sýklalyf. Og er ég strax orðinn miklu betri og var þar af leyðandi leikskólinn miklu auðveldari þessa vikuna, en ég er nú samt ekki alveg sáttur og er að reyna að stjórnast eitthvað en ég verð samt betri og betri með hverjum deginum.

En ég vill nú samt láta hlutina vera eins og ég vill svo að þegar mamma fer á morgnanna öskra ég nú svolítið mikið og hef meira að segja verið í fullum gír þegar Valur vinur minn kemur á deildina. En í gær var ég voðalega góður og sat og var að leika mér sem er mikil framför því ég var alltaf bara að henda dótinu, en þegar ég heyrði í mömmu - áður en ég sá hana - fór ég að kvartast eitthvað en það gekk allt saman upp og var ég alveg skælborsandi.

Í gærkvöldi fór mamma út með hinum septembermömmunum og skemmtu þær sér voðaleg vel eftir því sem ég heyrði. En þeim var nánast hent út klukkan 11 af Ítalí því starfsfólkinu fannst þær sitja helst til of lengil, en staðurinn er engu að siður opinn til 12 - hentaði bara ekki starfsfólkinu að hafa opið uppi lendur.

28.06.2006 14:35

Putalingur

Það er búið að loka Stubbalandi á leikskólanum en það var bara opnað sem aðlögunardeild, og er ég kominn alfarið yfir á Putaland núna og þar er hann Valur vinur minn líka en núna þegar ég er orðinn frískur er Valur orðinn veikur. Mér fannst voðalega gaman á leikskólanum á mánudaginn en ég var sko ekki sáttur við leikskólann í gær og öskraði frá 9 um morguninn og alveg þangað til að mamma sótti mig rétt fyrir hálf fjögur. Og var ég það reiður að ég meira að segja skreið á öllum fjórðum - í stað fyrir mitt tog/skrið - til mömmu alveg slökkviliðsrauður í framan!

22.06.2006 18:29

Á leið að verða frískur

Loksins virðist ég vera að verða frískur, ekki seinna vænna þar sem þetta er búið að vera mjög löng vika! En er ég búinn að vera alveg hitalaus í dag, mældist reyndar með 38°C rétt áðan en okkur er sagt að38°C og undir hjá börnum sé ekki hiti svo að við flokkum það sem hitalaust. Reyndar hef ég veirð hitalaus flest alla dagana og fengið svo um 39°C á kvöldin en vonandi er það búið núna. Svo hver veit, kannski fer ég að sofa í gegnum næturnar núna aftur í stað þess að vakna á klukkutíma fresti.

En núna þegar ég virðist vera að fara að verða frískur eru mamma og pabbi orðin lasin .... uss þvílíkt ástand á fjölskyldunni hjá okkur!!! En mamma var með 38,5°C og pabbi mjög slappur þannig að þau hafa skipts á að sofa í dag og líður báðum mun betur svo að vonandi byrjum við öll nýja viku alveg eldhress. Alla vegna hlakkar mér að fara aftur á leikskólann og hitta Erlu, Írisi og Ingibjörgu fósturs og krakkana á Stubbalandi.

Áðan fékk ég að smakka osta dorítos hjá pabba og finnst mér þær alveg voðalega góðar

17.06.2006 08:57

Augnsýking og skrið

Það vall svo mikið úr auganu mínu í gær að mamma og pabbi fóru með mig upp á heilsugæslu og gaf læknirinn mér sýklalyf í augað til að hreynsa upp sýkinguna og virðist það virka mjög svo vel því að augað er strax miklu betra.

Svo var ég að sýna mömmu að ég get alveg skriðið ... eða það er meira svona toga mig áfram. Svo að þetta hefur verið mjög mikil vika því að læra á súpukönnu, að sitja, standa og núna að skríða. Eins gott að gera þetta bara allt saman í einu ...

GLEÐILEGAN ÞJÓÐHÁTÍÐARDAG

16.06.2006 08:37

Annasöm vika

Ekki er hægt að vera minni en hin börning á leikskólanum, svo að ég dreif mig í að ná tökum á grundvallaratriðum og lærði að setjast upp alveg sjálfur á þriðudaginn og mætti halda núna að ég hafi ekki gert annað! Svo í gær ákvað ég að ná almennilegum tökum á að standa upp í rúminu mínu og geri það nú aftur og aftur og aftur. Ásamt því að reyna að standa upp með öllum stórum jafnt sem litlum hlutum í húsinu. En það er til myndband af mér að standa upp hérna undir "Myndbönd".

15.06.2006 20:48

Myndbönd

Mamma og pabbi eru búin að vera að seta inn myndbön af mér svo endilega kíkið í "Myndbönd" hérna til hægri í valmyndinni

15.06.2006 10:56

Sitjandi slappur leikskólastrákur

Ég átti svolítið bátt í gærkvöldi og í alla nótt að ég og mamma og pabbi sváfum ekki voðalega mikið. Það þurfti meira að segja að ganga um gólf með mig tvisvar svo að ég næði að sofna, og endaði ég með tvo stíla. En sem betur fer var enginn hiti, bara einhverjar magakvalir. Núna er ég með nokkuð kvef og mjög svo rennandi nef. Svo að ég fékk að vera heima í dag og pabbi er líka heima að hugsa um mig svo að mamma geti klárað lokaprófið sitt í dag. Það gengur sko á miklu hjá okkur þessa dagana!

Annars eru þær fréttir að núna finnst mér voðalega gaman að setjast endalaust upp og er búinn að gera það nokkrum sinnum í morgun og lítur yfirleitt út eins og ég hafi ekki gert neitt annað.

14.06.2006 15:38

Nýjar fréttir

Það helsta að frétta núna er að það er voðalega gaman á leikskólanum og og ég voða duglegur að leika mér yfir daginn og svo að borða þar. Í dag var ég í fyrsta skipti til klukkan 14 og fékk mér því lúr á leikskólanum. Ég er á voðalega fínni aðlögunnar deild sem kallast Stubbakot á Sólgarði en þar verðum við flest 9 í einu. Og eru þær Íris, Erla og Ingibjörg alveg æðislegar. En svo komumst við mamma að því að ég muni verða putalingur því að þegar ég er búinn í aðlögun mun ég fara á Putaland en þar verður hann Valur septembervinur minn líka.

Svo settist ég bara aftur upp í dag, voðalega góður með mig. Er þetta því í 4ra skipti á 10 dögum sem ég geri það svo að það er von um að ég fari að setjast bara að staðaldri bráðum. Einnig er ég líka alltaf að reyna að skríða og fer upp á fjórar og hendi mér svo fram, hefur það endað með nokkum andlistlendingum á flísunum, en ég kemst þó aðeins áfram.

Í dag þegar ég var búinn á leikskólanum fór ég í heimsókn til afa í vinnunni og knúsaði skrifborðið hans svo að ég fæ eflaust smá mar á ennið mitt.

Endilega munið eftir gestabókinni minni

10.06.2006 16:07

Til hamingju með afmælið pabbi

Hann pabbi minn á afmæli í dag og er því víst við hæfi að óska honum til hamingju með daginn.

TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN ELSKU PABBI!

Knúsi kveðjur frá mér og mömmu

07.06.2006 20:37

Fyrsta slysið

Ég varð fyrir smá slysi í dag!

En það var nú þannig að hún mamma setti mig niður á gólf við hurðina inn í forstofu og snéri sér við til að fara í jakka. Var hún varla komin í jakkann þegar hún heyrði mig öskra. Hafði ég rúllað mér í gegnum alla forstofuna og að útidyrahurðinni sem var opin, vorum að bíða eftir að við værum sótt, og skall niður með muninn á þröskuldinn. Brá henni mömmu heldur mikið því það rann víst nokkuð blóð út úr munninum mínum og voru öskrin mín eftir því ....  Þegar mamma var búin að hugga mig og amma að sækja okkur keyrðum við til tannlæknisins míns til að fá hann til að kíkja upp í mig og athuga hvort að ekki liti út fyrir að vera í lagi með tennurnar mínar. Sem honum sýndist nú vera. Hann að vísu lét hana mömmu fylla út pappíra varðandi áverkavottorð sem verður svo sent til Trygginarstofnunar uppá ef að þetta hefur einhver áhrif á tennurnar mínar, en svona högg geta víst líka haft áhrif á fullorðinstennurna.

Annars er ég mjög góður núna og virðist ekkert meiða mig í bólgnu vörinni því ég spila og syng á fullu með að nudda hendinni yfir munninn minn. Og mér finnst bólgan alveg voðalega fyndin, er alltaf að reka tunguna út úr til að finna hana

06.06.2006 13:05

Leikskóli

Í morgun fór ég í fyrsta skipti á leikskólann. Mamma og pabbi komu með mér og var ég á aðlögunarstofunni í um 50 mínútur. En þangað á még að mæta væntanlega þangað til að ég fer í fríi í júlí. Það voru tvær dömur á deildinni líka og var voðalega gaman að leika við þær, þær voru reyndar orðnar skriðfærar svo að þær skriðu bara yfir mig en mér var svo sem alveg sama um það. Samkvæmt mömmu og pabba stóð ég mig bara voðalega vel og að vonandi verður það svona auðvelt næstu daga. En við mamma mætum aftur á morgun klukkan 9:30 og verðum til hálf ellefu en hún mamma á að fara út í svona 10-15 mínútur og svo hægt og rólega lengjum við dagana mína.

03.06.2006 14:26

"att"

Nýjasta orðið mitt er ATT en það þýðir datt. Mér finnst alveg gífurlega fyndið þegar eitthvað dettur. Annars er ég voðalega duglegur að segja "mamma" "pabba", "amma" og "afa".

Annars er ég að fá mömmu til að setja inn nýjar myndir af mér

29.05.2006 13:23

Stór strákur

Jæja þá er víst komið að því að ég farið á leikskóla en ég mun byrja í aðlögun á þriðjudaginn í næstu viku eða 6. júní. En ég mun vera á leikskólanum Sólgarði og vonandi mun ég geta verið á sömu deild og Valur sem með mér í septemberhóp. Annars verða fleiri upplýsingar um leikskólaupplifunina mína í næstu viku.

Annars gleymdum við að segja frá skoðuninni minni sem fór mjög vel. Vikta ég núna 9420 gröm og mældist 70,5 cm en hjúkrunarfræðingurinn sagði við mömmu og pabba að þau mættu bæta viðsvona 1 -1,5 cm við þar sem ég algjörlega neitaði að hafa háls. Þ.e. að ég setti alltaf magann niður á nafla ...

23.05.2006 07:56

8 mánaða töffari: ætli eitthvað sé í gangi og fyrsta óóið

Nú er ég víst orðinn átta mánaða, jæja ekki alveg ... verið víst ekki átta mánaða fyrr en rétt fyrir hálf sjö í kvöld en það er svo sem ekkert nema aukaatriði . Það er mikill spenningur hérna heima fyrir næstu skoðun hjá mér, en hún verður á föstudaginn. Mamma og pabbi eru að giska á að ég sé 10 kg og 72 cm. Núna bíðum við bara og sjáum hvort að þau hafi rétt fyrir sér!

Ég er orðinn voðalega duglegur að dunda mér á gólfinu, fékk gömlu trépúslin hennar mömmu og gamlann tré vagn með trékubbum á og skemmti mér alveg gífurlega vel með það allt saman. Reyndar er snuddubandið mitt alltaf mjög svo spennandi hlutur. En mottan mín er það all mesta skemmtun, og veit ég fátt betra en að rífa hana alla í sundur dreifa út um allt gólf, en hún er jú líka fín til nögunnar!

Það er jú spurning, er ég alla vegna farinn að gera mig mjög svo tilbúinn til að fara á ferð.

Mikið er velt fyri sér núna hvort að ég ætli að skíða eftir allt saman. En eyði ég orðið miklum hluta af deginum uppi á tánum, en það skapar stundum þónokkrum pirring því að ég kemst svo ekkert áfram og er ég alls ekki sáttur við það. Finnst auðvitað að ég eigi að komast allt sem ég vill. Ég geri það nú reyndar, en það er í formi rúlli, og kemst hratt og flótt yfir þannig.

En í gær var hún mamma með mér á gólfinu að leika við mig og lá hún á hliðinni, var ég ekki að fúsa mér við að rúlla mér að henni og tosaði mig upp á hnéin og svo alla leið upp á tær. Stóð reyndar mjög völtum fótum og datt svo á bottninn. Varð svo ekkert meira úr þessum uppstigum hjá mér í gær. Svo þegar ég vaknaði í morgun og var kominn upp í mömmu og pabba rúm, varð ég auðvitað að gera þetta allt saman upp á nýtt og stóð voðalega montinn í aðeins lengur tíma en í gær og datt svo hlægjandi til hliðar.

Svo kom fyrsta óóið mitt í gær. Var að standa og var verið að laga buxurnar mínar, en ég var svo fljótur að snúa upp á mig að ég datt aftur fyrir mig og datt beint á hnakkann. En það var fjótt að lagast þegar hann Lúlli-nn minn kom og bjargaði málunum. Lúlli bangsi er alltaf góður við mig.

21.05.2006 15:31

Kúkur í lauginni

Það er jú sunnudaguri í dag svo að þá eru hinir geisilega spennandi sundtímar hjá mér. Mæti ég klukkan 9:45 og finnst alveg æðislega gamann. Orðinn voðalega brattur og duglegur að kafa. Og svo gott sem hættur að kvarta, ég öskra í það minnsta ekki lengur. Fannst Óla sundkennara ég vera orðinn svo duglegur að ný þyrfti að fara að kenna mér "já" og "nei" hvað varðar að sitja á kanntinum og koma út í laugina. Ég sit nefnilega núna og fikra mig hægt og rólega nær og er svo augljóslega búinn að ákveðja mig löngur áður en ég fer útí að ég ætla að dýfa mér.

En svo gerði ég nokkuð óó í sundi í dag! Og hafi nú ekki mikið fyrir því, heldur kúkaði ég bara í laugina. Var því tekinn upp úr og þrifinn, einungis til að koma aftur ofan í og kúka svo upp á nýtt í lok tímanns  

Flettingar í dag: 323
Gestir í dag: 73
Flettingar í gær: 283
Gestir í gær: 76
Samtals flettingar: 29078
Samtals gestir: 9818
Tölur uppfærðar: 15.1.2025 16:55:03

Eldra efni

Tenglar