Sebastían Jóhann Einarsson Velkomin á heimasíðuna mína
|
|
Færslur: 2007 Júlí12.07.2007 21:02Byko i pippoEins og undan farið hafa nýju orðunum hlaðið inn en það vinsælasta núna er Byko! Já búðin Byko .... en svo vill til að þessa dagana förum við mikið í Byko og þar eru til bílakerrur sem er alveg þvílíkt vinsælar að sorgin er mikil þegar farið er heim. Er því mikið sagt þessa dagana "fa'a Byko i pippo" en pippo er jú pick-up. Síðast liðinn laugardag var byrjað að láta Sebastían sofa í sínu rúmi alla nóttina og var hann ekki par hrifinn af því fyrstu nóttina en kvartaði á hverjum klukkutíma. Aðfaranótt mánudag var vaknað sex sinnum en nóttina þar á eftir var ekki rumskað nema þrisvar sinnum og svo síðustu nótt var bara sofið alveg í gegnum nóttina, var það bara mamma sem vaknaði til að athuga hvort að ekki væri allt í lagi með prinsinn! Skrýtnar þessar mömmur, fyrst vilja þær ekki vakna á nóttunni og svo þegar þær geta sofið alla nóttina vakna þær til að athuga hvort að ekki sé alveg örugglega allt í lagi. Pabbi, afi, afi og Árni frændi eru búnir að vera rosalega duglegir uppi í húsi og erum við komin með um helminginn af veggjunum núna og er byrjað að slá frá. Steypun númer tvö mun eiga sér stað fljótlega í næstu viku og síðasta steypunin sem verða bara innveggir mun eiga sér stað annan mánudag svo að þetta er allt saman að gerast hjá okkur. Enda erum við orðin rosalega spennt. Svo er það að frétta að hún amma Heidi er að koma frá Danmörku á sunnudaginn og hlakkar mig voðalega mikið til að hitta hana, en hver veit nema að ég tali bara færeysku þegar júlí er búinn! --- The words keep on piling inn and now the most popular sentance is "fa'a i Byko pippo" which means "go to Byko to drive pippo (pick-up)" but Byko is a large hardware store and they have shopping carts that look like cars and have stearing wheels and all. But lately we have been going there quite a lot with the approrpirate sounds and noises while Sebastían drives the shopping cart from the car below, but there also the same fight every time that we have to go and leave the car behind. Last Saturday night we begun to have Sebastían sleep through the night in his own bed, he wasn't at all happy the first night and woke up every hour, the following night he woke up six times and then the night after that he stirred three times. Already a lot better. Then last night he slept through, but the mom woke up to check to see if things weren't all right!! Strange those moms, when they can finally sleep they wake up!! Lots of things are happening at the house. We have half the walls up and running now and it is fantastic to see click here to see our house website Then grandma Heidi is coming from Denmark on Sunday which is fantastic as I havn't seen her since last February. And who knows, I might actually just be speaking Faroese at the end of July! Skrifað af Sebastían 07.07.2007 22:52Kominn tími fyrir uppfærslu / Time for an updateÞað er nú löngu kominn tími til að uppfæra síðuna mína, en hún mamma er búin að vera svo upptekin í húsinu að hún hefur ekki haft tíma til að uppfæra síðuna fyrir mig. En það helsta sem er að frétta af mér er það að mig vantar bara tvær tennur núna til að verða fulltenntur og verð ég voðalega feginn þegar ég losna við allt þetta slefvesen. Annars er ég í fríi allan júlí mánuð og nýt þess í botn. Það er voðalega gaman að fá að vera heima með mömmu og ömmu og snúast með þeim, en mér er sko alveg sama þó svo að það sé verið að vesenast út um allan bæ. Um daginn var ég að príla uppi í sófa og henti mér fram úr, sem hefði svo sem ekkert verið neitt sérstaklega þægileg lendin hefði ég farið beint á gólfin. En svo var ekki raunin, heldur lenti ég á arminum á hægindarstólnum mínum og marðist all illilega á kinninni minn. Markið er búið að vera þar í nokkrar vikur en er loksins að minnka. Ég er farinn að segja alveg heilan helling af orðum og bætast ný og ný orð alltaf við hjá mér nánast daglega. Það er mikið fjör á hóli núna en afi Klemens kom frá Danmörku um síðustu helgi og er alveg gífurlega gaman að hafa tvo afa til að hlaupa á eftir mér. Ég tók nokkuð stórt skref í dag, en hingað til hef ég alltaf sagt mömmu frá þegar ég er búinn að kúka en núna sagði ég henni það áður en ég kúkaði. Fór ég og settist á stóra klósettið en ekkert kom, er ekki alveg búinn að fata hvernig ég á að rembast á klósetinu en það kemur bara allt saman á endanum. Tökum bara eitt skref í einu. --- It is way over due for an update, but mom has been so terribly busy at the house that she just hasn't had the time to update my website for quite the while. As of now I am only two teeth away from having them all, and boy ohh boy will I be thrilled to get rid of all this drooling business and getting sick and tired of always being wet! At the moment I am on vacation from the daycare and am loving it. I spend the day with mom and grandma and enjoy running errands with them all over the place. The other day I was climing and jumping on the couch and threw myself of from it, the landing by itself would have been rather uncomfortable if I would have landed on the floor. However, that was not the case as I landed on my lounge chair and hit my chin on it which was extremely brused and is just now getting back to its normal shade. I am adding new words to my vocabulary every day. My grandpa came over from Denmark so I am enjoying the extra attention these days to the fullest. Not bad to having two grandpa's running after you. I hit a very big milestone today. For a while I have been telling mom when I have pooped, but today I told her before I did. So we went to the toilet but nothing came. I havn't exactly figured out how to push while on the toilet. But we are just taking one step at a time. Skrifað af Sebastían
Flettingar í dag: 323 Gestir í dag: 73 Flettingar í gær: 283 Gestir í gær: 76 Samtals flettingar: 29078 Samtals gestir: 9818 Tölur uppfærðar: 15.1.2025 16:55:03 |
Eldra efni
Tenglar
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is